Fyrsta framhaldsprófið í trommuleik við Tónlistarskóla Vestmannaeyja
Séra Viðar ásamt kennara sínum, Birgi Nielsen. Ljósmynd/aðsend.

Nú líður að lokum vorannar Tónlistarskólans og þar með skólaárinu 2025-2026. Árið hefur verið að mestu með hefðbundnum hætti hvað kennslu varðar, en framkvæmdir á húsnæðinu hafa sett svip sinn á skólastarfið. Tökum við slíku fagnandi, enda löngu kominn tími á lagfæringar á húsnæðinu. Má meðal annars nefna að nú er komið aðgengi fyrir fatlaða um nýjan inngang sem og að lyfta er komin í húsið ásamt salernisaðstöðu fyrir fatlaða.

Nemendur eru 125 í skólanum og er kennt á 14 hljóðfærategundir auk söngs. Við skólann eru einnig kennsla í samspilshópum og tónfræðigreinum. Kennarar skólans hafa einnig séð um tónmenntakennslu í grunnskólanum og á Víkinni auk þess sem Karlakór Vestmannaeyja, Kvennakór Vestmannaeyja og Lúðrasveit Vestmannaeyja starfa undir hatti skólans. Það eru því upp undir 500 manns sem stunda tónlistarnám á einu eða öðru formi í skólanum.

Í vikunni sem leið fóru fram áfangapróf við skólann. Voru prófin fimm talsins. Þrjú grunnpróf á saxofón, rafbassa og trommur. Eitt miðpróf á saxofón og svo eitt framhaldspróf á trommur.

Það er fátítt að nemendur ljúki framhaldsprófi frá skólanum, en slíkt próf jafngildir stúdentsprófi. Þá telst okkur til að þetta sé í fyrsta sinn sem nemandi taki framhaldspróf á trommur við skólann. Próftakinn var annar prestanna okkar Viðar Stefánsson og lauk hann þessum verklega hluta prófsins með glans. Viðar mun verða með burtfarartónleika í haust, þar sem hann mun flytja efni úr prófinu. Við erum ákaflega stolt af nemendum okkar sem þreyttu prófin í vikunni og þá sérstaklega Viðari og ekki síður kennara hans Birgi Nielsen en svona próf er mikið samvinnuverkefni kennara og nemanda.

Í næstu viku 18.-22. maí verða vortónleikar Tónlistarskólans. Þá verðum við með tónleika alla virku dagana kl.17:30. Á tónleikunum verða fjölbreytt einstaklings og hópatriði frá nemendum skólans og stendur hver viðburður yfir í 30 – 60 mínútur.

Formleg skólaslit Tónlistarskólans verða á tónleikum 22. maí, segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum skólans.

Nýjustu fréttir

Sjómannskonur: Guðbjörg Erla
Vel heppnuð fimleikasýning
Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni
Dagur hlaut háttvísisverðlaun HDSÍ
Krakkarnir á Víkinni fögnuðu útskrift
Sjómennska, Surtsey og sveitarstjórn í nýjum Eyjafréttum
Vorsýning fimleikafélagsins í dag
Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.