Hópferðabifreið lenti í vandræðum á nýja hrauninu í dag þegar hópur var á leið að skoða nýtt listaverk eftir Ólaf Elíasson á svæðinu.
Að sögn sjónarvotta var verið að aðstoða við að koma rútunni til baka þegar hún grófst niður í jarðveginn. Litlu hafi munað að bifreiðin færi út af veginum við þessar aðstæður.
Samkvæmt upplýsingum sem Eyjafréttir hafa fengið er vegurinn á svæðinu ekki gerður fyrir þungaflutninga eða stórar hópferðabifreiðar og virðist jarðvegurinn hafa gefið eftir undan þunga rútunnar.
Á myndum sem Eyjafréttir fengu sendar sést hvernig vinnuvélar voru kallaðar til aðstoðar við að koma rútunni úr sjálfheldunni. Ekki er vitað til þess að slys hafi orðið á fólki.
