Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Ferjurnar mætast milli lands og eyja. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Mikil umferð hefur verið í Vestmannaeyjasiglingum síðustu daga og var líf og fjör við ferjuhöfnina í gær, eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi sem Halldór B. Halldórsson tók.

Frá því í byrjun vikunnar hafa Herjólfur og Baldur siglt saman á milli lands og Eyja og eru nú farnar tólf ferðir á dag. Samkvæmt upplýsingum frá Herjólfi hafa skipin flutt ríflega tíu þúsund farþega á síðustu fjórum dögum og hefur bíladekk verið fullbókað í flestar ferðir frá Vestmannaeyjum um helgina.

Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs – sagði fyrir helgi í samtali við Eyjafréttir – að ljóst sé hversu mikilvæg viðbótargeta Baldurs hafi reynst á þessum annasama tíma.

„Það er alveg ljóst að án Baldurs værum við í mun erfiðari stöðu núna þegar umferðin er að aukast með sumrinu,“ sagði Ólafur.

Eins og greint var frá fyrir helgi hefur viðgerð á rafmótor Herjólfs tafist og er nú stefnt að því að skipið verði komið aftur í fullan rekstur um miðjan júlí. Óskað hefur verið eftir því að Baldur verði áfram í Vestmannaeyjasiglingum þar til Herjólfur verður kominn í fullan rekstur á ný.

Play Video

Nýjustu fréttir

„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.