Viðgerð á rafmótor Herjólfs hefur tafist vegna seinkunar á afhendingu varahluta og ljóst er að skipið verður ekki komið aftur í fullan rekstur eins fljótt og vonir stóðu til.
Þetta kom fram á fundi fulltrúum Herjólfs með forsvarsmönnum hollenska verkstæðisins Emri, þar sem rafmótor skipsins er í viðgerð. Upphaflega var gert ráð fyrir að viðgerðinni lyki í lok júní, en nú er stefnt að því að henni ljúki um miðjan júlí.
„Við fengum þær upplýsingar frá verkstæðinu að tafir hefðu orðið á afhendingu koparvírs sem er nauðsynlegur fyrir viðgerðina. Það hefur því miður haft áhrif á framvinduna og seinkað verklokum,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs.
Samkvæmt upplýsingum frá verkstæðinu verður unnið á vöktum við viðgerðina og prófanir til að flýta framkvæmdum eins og kostur er.
„Núna er miðað við að sjálfri viðgerðinni ljúki um miðjan júlí. Þegar mótorinn kemur til landsins þarf síðan að setja hann upp í skipið og sú vinna tekur að öllum líkindum þrjá til fjóra sólarhringa.“
Aðspurður um hvort það hafi ekki munað miklu að fá Baldur í áætlun á móti Herjólfi segir Ólafur svo vera.
„Baldur hefur reynst okkur afar mikilvægur á þessum annasama tíma. Frá því í byrjun vikunnar hafa skipin tvö siglt saman og boðið upp á tólf ferðir á dag milli lands og Eyja. Á síðustu fjórum dögum hafa ferjurnar flutt ríflega tíu þúsund farþega og útlit er fyrir áframhaldandi traffík þar sem bíladekkið er fullbókað í 20 af 25 ferðum um helgina.“
Ólafur segir að ljóst sé að viðbótargetan sem Baldur veitir skipti miklu máli.
„Við höfum því óskað eftir því að Baldur verði áfram í siglingum þar til Herjólfur verður kominn í fullan rekstur á ný. Á meðan skipið siglir aðeins á annarri skrúfunni getum við ekki sinnt fyrirhugaðri átta ferða áætlun. Það er alveg ljóst að án Baldurs værum við í mun erfiðari stöðu núna þegar umferðin er að aukast með sumrinu.“