Karlalið ÍBV í fótbolta vann afar mikilvægan 1-4 sigur gegn Þór í tíundu umferð Bestu deildar karla á Akureyri í dag. Var þetta fyrsti leikur liðanna eftir tveggja vikna landsleikjahlé.
Eyjamenn byrjuðu leikinn frábærlega og voru komnir í 0-3 eftir 24 mínútur. Bjarki Björn Gunnarsson kom ÍBV yfir á 12. mínútu eftir undirbúning Vicente Valor. Bjarki var aftur á ferðinni tíu mínútum síðar og þá eftir sendingu frá fyrirliðanum Alex Frey Hilmarssyni. Aðeins þremur mínútum síðar kom Sesar Örn Harðarson Eyjamönnum í 0-3 eftir sendingu inn fyrir frá Bjarka Birni sem er búinn að vera frábær í síðustu tveimur leikjum. Eyjamenn leiddu með þremur mörkum í hálfleik.
Þórsarar minnkuðu muninn seint í síðari hálfleik, á 81. mínútu, með frá Ágústi Eðvaldi Hlynssyni. Eyjamenn svöruðu því og gerðu endanlega út um leikinn mínútu síðar. Hermann Þór Ragnarsson kom þá boltanum á Omar Sowe sem kom sér í skotfæri. Skotið breytti um stefnu eftir viðkomu varnarmanns Þórs og þaðan í markið. Lokatölur leiksins 1-4 og ÍBV með sinn annan sigur í deildinni í sumar.
Með sigrinum komst ÍBV upp fyrir Þór og sitja nú í tíunda sæti með átta stig. Þórsarar er í sætinu fyrir neðan með sex stig. Annar leikur fór fram í dag þar sem Keflavík tók á móti FH og bar FH sigur úr býtum, 1-2.
Þór 1 – 4 ÍBV
0-1 Bjarki Björn Gunnarsson (’12)
0-2 Bjarki Björn Gunnarsson (’21)
0-3 Sesar Örn Harðarson (’24)
1-3 Ágúst Eðvald Hlynsson (’81)
1-4 Ásbjörn Líndal Arnarsson (’82 , sjálfsmark)
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.