ÍBV og FH mættust í 14. umferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í kvöld þar sem niðurstaða leiksins var 2-2 jafntefli.
FH konur voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik og voru með tveggja marka forystu í hálfleik. Hrönn Haraldsdóttir skoraði fyrra mark gestanna á 33. mínútu þegar hún skoraði eftir fyrirgjöf frá Hafrúnu Birnu Helgadóttur. Ingibjörg Magnúsdóttir tvöfaldaði forystu FH með frábæru marki. Hún fékk þá boltann á miðjum vellinum og keyrði upp allan völlinn áður en hún lagði boltann laglega í markið.
Það sama var upp á teningnum í síðari hálfleik. FH konur fengu urmul að tækifærum til að klára leikinn. Allison Grace Lowrey kom inn á hjá Eyjakonum á 58. mínútu leiksins og það var ekki fyrr en þá sem Eyjakonur ógnuðu marki FH að einhverju ráði. Mínútu síðar minnkuðu Eyjakonur muninn eftir gott samspil. Allison Patricia Clark átti þá sendingu inn á teiginn og Andrea Rán Sæfeld Hauksdóttir, leikmaður FH, setti boltinn í eigið mark. Það var svo Allison Grace Lowrey sem skoraði jöfnunamark ÍBV þegar komið var í uppótartíma. Lokatölur leiksins 2-2.
Eyjakonur eru áfram í fjórða sæti deildarinnar með 21 stig. FH konur halda toppsætinu á markatölu og eru með 30 stig líkt og Breiðablik.
Þróttur R. 1 – 1 Víkingur R.
Stjarnan 0 – 0 Grindavík/Njarðvík
Breiðablik 2 – 0 Þór/KA
ÍBV 2 – 2 FH
Fram 4 – 1 Valur