ÍBV náði jafntefli gegn toppliði FH með marki í blálokin
Allison Grace Lowrey skoraði jöfnunarmark ÍBV í kvöld. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og FH mættust í 14. umferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í kvöld þar sem niðurstaða leiksins var 2-2 jafntefli.

FH konur voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik og voru með tveggja marka forystu í hálfleik. Hrönn Haraldsdóttir skoraði fyrra mark gestanna á 33. mínútu þegar hún skoraði eftir fyrirgjöf frá Hafrúnu Birnu Helgadóttur. Ingibjörg Magnúsdóttir tvöfaldaði forystu FH með frábæru marki. Hún fékk þá boltann á miðjum vellinum og keyrði upp allan völlinn áður en hún lagði boltann laglega í markið. 

Jöfnunarmarkið kom á síðustu mínútu leiksins

Það sama var upp á teningnum í síðari hálfleik. FH konur fengu urmul að tækifærum til að klára leikinn. Allison Grace Lowrey kom inn á hjá Eyjakonum á 58. mínútu leiksins og það var ekki fyrr en þá sem Eyjakonur ógnuðu marki FH að einhverju ráði. Mínútu síðar minnkuðu Eyjakonur muninn eftir gott samspil. Allison Patricia Clark átti þá sendingu inn á teiginn og Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, leikmaður FH, setti boltinn í eigið mark. Það var svo Allison Grace Lowrey sem skoraði jöfnunamark ÍBV þegar komið var í uppótartíma. Lokatölur leiksins 2-2.

Eyjakonur eru áfram í fjórða sæti deildarinnar með 21 stig. FH konur halda toppsætinu á markatölu og eru með 30 stig líkt og Breiðablik.

14. umferð Bestu deildar kvenna

Þróttur R. 1 – 1 Víkingur R.

Stjarnan 0 – 0 Grindavík/Njarðvík

Breiðablik 2 – 0 Þór/KA

ÍBV 2 – 2 FH

Fram 4 – 1 Valur

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.