Ískaldur bjór og mikill hlátur, þá er allt fullkomið
Siggi í góðra vina hópi. 

Á þjóðhátíðinni eiga allir sínar hefðir, uppáhaldslög og minningar sem gera hátíðina einstaka. Við heyrðum í nokkrum Eyjamönnum og fengum þau til að svara nokkrum spurningum um þjóðhátíðina, tilhlökkunina, uppáhaldshefðirnar og það sem má ekki vanta í tjaldið.

Nafn: Sigurður Bragason 

Fjölskylda: Giftur Elísu Sigurðardóttur og saman eigum við 2 stelpur, Lilju og Emilíu. 

Hvernig leggst þjóðhátíðin í þig? Bara eins og allar hinar, ég er bara mjög peppaður. Það verður að viðurkennast að maður þráir eina svona bongóblíðu hátíð. Síðustu 2 hafa verið vel litaðar af veðri. Eigum við ekki skilið að fá eina mjög góða? 

Hversu oft hefur þú farið á þjóðhátíð? Misst af einni (1983) þannig að þær eru orðnar 48. 

Hvað stendur upp úr á hverju ári? Hjá mér er það að sjálfsögðu brennan. Ég hef tekið þátt í henni síðan 1994, og þá meina ég að  öllu leyti.  Við handboltamenn stöflum henni (þó ég hafi nú lítið verið í því undanfarin ár). Svo drógum við vinirnir bennukónginn í kringum tjörnina í nokkur ár, ég hef skvett á hana og tekið þátt í að koma blysinu úr fjöllunum í hana. Núna undanfarin 10 ár hef ég verið slökkvikall uppi á kletti. Aðstoðað skvettarana og séð til að þetta fari vel fram. Svo er það vissulega þegar maður situr í þessari brekku og þessi værð hellist yfir mann. Geggjað móment.  

Uppáhalds þjóðhátíðarhefð? Það er nú ekkert hjá mér sem er algert must sko. Ég hef verið í öllu og finnst þetta í raun allt geggjað. Vissulega er það góð hefð að mæta alltaf á setninguna og taka þátt í þessari sterku hefð sem þar er, þ.e.a.s þetta hátíðlega og muna að þetta er 150 ára gamalt. Núna undanfarin ár hefur fiskisúpan hjá Sigurjóni og Ágústu á laugardeginum verið ákveðinn “starter” á hátíðinni.  

Hvert er uppáhalds þjóðhátíðarlagið Ég er nostalgía þarna, ég er meira fyrir gömlu heldur en þessi nýju. Síðasti dansinn kemur mér alltaf í alvöru þjóðhátíðargír enda frábært lag.  

Hvað má ekki vanta í hvíta tjaldið? Sko slepjusvarið er “gott fólk” en ef ég á að tala frá hjartanu þá er það ískaldur bjór og mikill hlátur, þá er allt fullkomið. 

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Júníus Meyvant með tónleika í Alþýðuhúsinu
Fyrsti leikurinn undir stjórn Bergvins
Loppumarkaður á Heiðarvegi um helgina
Opna fjöldahjálparstöð í Arnardrangi á laugardag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.