Aldrei neitt sem toppar þessa helgi

Á þjóðhátíðinni eiga allir sínar hefðir, uppáhaldslög og minningar sem gera hátíðina einstaka. Við heyrðum í nokkrum Eyjamönnum og fengum þau til að svara nokkrum spurningum um þjóðhátíðina, tilhlökkunina, uppáhaldshefðirnar og það sem má ekki vanta í tjaldið.

Nafn: Svava Kristín Grétarsdóttir.

Fjölskylda: Ég á eina dóttur, Andreu Kristnýju Gretars.

Hvernig leggst Þjóðhátíðin í þig? Ég er alltaf jafn vandræðalega spennt fyrir þessu. Það er einfaldlega aldrei neitt sem toppar þessa helgi. Nú fæ ég líka að upplifa hátíðina aðeins öðruvísi, eins og í fyrra, eftir að við opnuðum Prýði. Það er mikil stemning í því líka að hitta allt skemmtilega fólkið sem leggur leið sína niður í bæ og kíkir á okkur þar.

Hversu oft hefur þú farið á Þjóðhátíð? Ég er á leiðinni á mína 36. Þjóðhátíð. Ég hef aldrei misst af hátíðinni og sé það ekki gerast.

Hvað stendur upp úr á hverju ári? Samveran með fjölskyldu og vinum. Að sitja í brekkunni, horfa yfir fallega Dalinn okkar og sjá hvað sjálfboðaliðarnir hafa enn eitt árið lagt á sig í óeigingjörnu starfi svo samfélagið geti notið hátíðarinnar saman. Ég verð alltaf jafn orðlaus yfir fegurðinni í Herjólfsdal.

Hver er uppáhalds Þjóðhátíðarhefðin? Reykti lundinn, pylsupartýið og pelsapartýið hjá bróður mínum.

Hvert er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið? „Takk fyrir mig“ með Ingó. Þetta er algjört gæsahúðarlag, sungið sem þakklæti til okkar Eyjamanna fyrir þessa mögnuðu hátíð. En því miður er þetta eina lagið sem hefur aldrei fengið að hljóma í Dalnum. Ég vona innilega að við getum einhvern tímann þakkað fyrir okkur til baka og leyft brekkunni að syngja með þessu fallega lagi.

Hvað má ekki vanta í hvíta tjaldið? Púðursykur, Jameson, kaffi og rjóma.

Nýjustu fréttir

Aldrei neitt sem toppar þessa helgi
Ískaldur bjór og mikill hlátur, þá er allt fullkomið
HSU með sólarhringsviðbúnað yfir Þjóðhátíð
Tveir gistu fangageymslur eftir húkkaraballið
Hver Þjóðhátíð hefur sinn sjarma
Hvítu tjöldin – Undirbúningur hefst strax að hátíð lokinni
Húkkaraballið – myndir
Samveran í Dalnum stendur upp úr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.