Eyjafréttir og Fretta.is í samstarf
Fréttir Eyjafrétta birtast nú einnig á Fretta.is :: Nýtt umræðukerfi gefur lesendum kost á virkari þátttöku
Fréttir Eyjafrétta birtast nú á Fretta.is og nýtt umræðukerfi frá Speakness hefur verið tekið í notkun á Eyjafrettir.is. Samsett mynd.

Eyjafréttir og fréttaveitan Fretta.is hafa hafið samstarf. Fréttir af Eyjafréttum birtast nú á Fretta.is og þegar lesendur smella á þær er þeim vísað beint inn á vef Eyjafrétta.

Samhliða samstarfinu hefur nýtt umræðukerfi frá Frétta verið tekið í notkun undir fréttum á Eyjafrettir.is. Þar geta lesendur skrifað athugasemdir og greitt atkvæði um fréttir og innlegg annarra lesenda.

„Umræðukerfið er vonandi leið til að auka umræðu um brýn málefni Vestmannaeyja. Það er von okkar á Eyjafréttum að þar skapist málefnalegar og góðar umræður þar sem ólík sjónarmið fá að heyrast,“ segir Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjafrétta.

Hann segir samstarfið jafnframt vera tilraun með nýjum samstarfsaðilum. „Við erum að prófa okkur áfram með nýjum samstarfsaðilum og vonum að lesendur taki þessari nýjung vel. Við hvetjum fólk til að prófa kerfið, taka þátt og leggja sitt af mörkum til uppbyggilegrar umræðu um samfélagið okkar.“

Kosningakerfið er meðal annars hugsað til að ýta undir háttvísi og góða umræðæðuhefð, þar sem lesendur geta sjálfir gefið málefnalegum og uppbyggilegum innleggum aukið vægi. Kerfið er að stórum hluta sjálfvirkt, en Eyjafréttir hafa jafnframt möguleika á að ritstýra athugasemdum og grípa inn í ef þörf krefur.

„Á Fretta.is geta notendur jafnframt búið til eigin svokallaðar ratsjár til að fylgjast með fréttum og áhugaverðu efni víða um land,“ segir Gunnlaugur Jónsson hjá Fretta.is. Með ratsjánum geta lesendur sérsniðið fréttayfirlitið að eigin áhugasviðum og fylgst á einum stað með umfjöllun frá fjölbreyttum íslenskum miðlum.

Með samstarfinu fær efni Eyjafrétta aukna dreifingu um leið og lesendum gefst nýr vettvangur til að fylgjast með fréttum og taka þátt í umræðunni um Vestmannaeyjar.

Nýjustu fréttir

Eyjafréttir og Fretta.is í samstarf
Pysjurnar bæði fleiri og þyngri í ár
Radarhýsi rís á Stórhöfða
Styrkur Eyjafrétta liggur líka hjá lesendum
Vertu velkomið haust
Íþróttamiðstöðin eitt af táknum endurreisnar Eyja
ÍBV tapaði með fjórum mörkum gegn Val
ÍBV tapaði gegn Stjörnunni í fyrsta leik neðri hlutans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.