Kjötsúpukvöld Karlakórsins á föstudag

Karlakór Vestmannaeyja hefur starfsemi vetrarins á hinu árlega kjötsúpukvöldi í Kiwanishúsinu föstudaginn 18. september kl. 20.00. Öllum karlmönnum í Vestmannaeyjum er boðið að koma, gæða sér á kjötsúpu og kynna sér starf kórsins. Kjötsúpukvöldið er kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á söng og góðum félagsskap að kynnast starfi Karlakórsins og jafnvel ganga til […]

Ný bók frá Ásmundi Friðrikssyni 

Ný bók eftir Ásmund Friðriksson kom út í byrjun september, samhliða Ljósanótt í Reykjanesbæ. Þá eru liðin 20 ár frá því að herinn yfirgaf Miðnesheiði og jafnframt 20 ár frá því að Ási tók við stjórn Ljósanætur og efldi hátíðina í samstarfi við gott fólk. Í tilefni þessara tímamóta gefur hann út bókina Sögur af […]

Eyjafréttir og Fretta.is í samstarf

Eyjafréttir og fréttaveitan Fretta.is hafa hafið samstarf. Fréttir af Eyjafréttum birtast nú á Fretta.is og þegar lesendur smella á þær er þeim vísað beint inn á vef Eyjafrétta. Samhliða samstarfinu hefur nýtt umræðukerfi frá Frétta verið tekið í notkun undir fréttum á Eyjafrettir.is. Þar geta lesendur skrifað athugasemdir og greitt atkvæði um fréttir og innlegg […]

Pysjurnar bæði fleiri og þyngri í ár

Alls hafa 4.566 pysjur verið skráðar í Vestmannaeyjum það sem af er pysjutímabilinu, samkvæmt nýjustu tölum á lundi.is. Af þeim hafa 1.095 pysjur verið vigtaðar og er meðalþyngdin 303 grömm. Sú þyngsta hefur vegið 650 grömm en sú léttasta 200 grömm. Tölurnar eru athyglisverðar í samanburði við síðasta ár. Þá voru alls 3.283 pysjur skráðar […]

Radarhýsi rís á Stórhöfða

Landhelgisgæsla Íslands hefur fengið samþykki fyrir uppsetningu radarhýsis á Stórhöfða. Framkvæmdin er liður í uppbyggingu og eflingu ratsjárvöktunar á hafsvæðinu við Vestmannaeyjar. Málið var tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar. Radarhýsið verður staðsett um 48 metra suðsuðvestur af Stórhöfðavita, á landi í eigu íslenska ríkisins sem er í umsjón Vegagerðarinnar. Um er að ræða sérhannað […]

Styrkur Eyjafrétta liggur líka hjá lesendum

Það er ánægjulegt að sjá að áskrifendum Eyjafrétta hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarna mánuði. Fyrir lítinn staðbundinn fjölmiðil skiptir hver áskrifandi miklu máli. Áskriftin er ekki aðeins aðgangur að fréttum heldur um leið stuðningur við sjálfstæða og öfluga fjölmiðlun í Vestmannaeyjum.  Miðlaumhverfið hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og Eyjafréttir með. Útgáfan er […]

Vertu velkomið haust

Sumarið er dásamlegur tími, það velkist enginn í vafa um það. Eftir langan og oft erfiðan vetur fer hitastigið hækkandi, náttúran skartar sínu fegursta og lífið fer á fullt sving. Ferðalög, útivera, grillveislur, brúðkaup og partý af ýmsum toga; eimreiðin gefur allt í botn og lífið fer allt á fleygiferð.   En svo kemur haustið og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.