Radarhýsi rís á Stórhöfða
Stórhöfði. Fyrirhugað radarhýsi verður staðsett um 48 metra suðsuðvestur af Stórhöfðavita.

Landhelgisgæsla Íslands hefur fengið samþykki fyrir uppsetningu radarhýsis á Stórhöfða. Framkvæmdin er liður í uppbyggingu og eflingu ratsjárvöktunar á hafsvæðinu við Vestmannaeyjar.

Málið var tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar. Radarhýsið verður staðsett um 48 metra suðsuðvestur af Stórhöfðavita, á landi í eigu íslenska ríkisins sem er í umsjón Vegagerðarinnar.

Um er að ræða sérhannað hýsi fyrir ratsjár- og fjarskiptabúnað ásamt tilheyrandi tengingum og búnaði.

Fyrir liggur leyfi Vegagerðarinnar fyrir staðsetningu mannvirkisins og jákvæð umsögn Geislavarna ríkisins vegna fyrirhugaðs ratsjárbúnaðar.

Framkvæmdin var tekin fyrir sem tilkynningarskyld mannvirkjagerð, sem er undanþegin byggingarheimild og byggingarleyfi. Erindið var samþykkt.

Stórhöfðaviti.

Nýjustu fréttir

Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.