
Það er ánægjulegt að sjá að áskrifendum Eyjafrétta hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarna mánuði. Fyrir lítinn staðbundinn fjölmiðil skiptir hver áskrifandi miklu máli. Áskriftin er ekki aðeins aðgangur að fréttum heldur um leið stuðningur við sjálfstæða og öfluga fjölmiðlun í Vestmannaeyjum.
Miðlaumhverfið hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og Eyjafréttir með. Útgáfan er nú að mestu rafræn, en verkefnið er eftir sem áður hið sama: Að segja frá því sem gerist í Eyjum, veita stjórnvöldum og öðrum aðhald, halda utan um sögu samfélagsins og skapa vettvang fyrir ólíkar raddir og sjónarmið.
Á okkar litlu ritstjórn höfum við lagt okkur fram um að sinna sem flestum hópum samfélagsins. Ritstjórnin sjálf er fjölbreytt, með jafnri kynjaskiptingu og breiðu aldursbili, sem skilar sér í ólíkum sjónarhornum og fjölbreyttum efnistökum. Við viljum að þessi breidd endurspeglist í umfjöllun Eyjafrétta og að ólíkar kynslóðir, raddir og sjónarmið fái þar að njóta sín.
Eyjalífið er enda fjölbreytt og þannig viljum við að miðillinn okkar sé líka. Á einum og sama deginum getum við fjallað um stórar framkvæmdir, ákvarðanir bæjaryfirvalda, atvinnulífið, afrek íþróttafólks, fyrstu pysju ársins og einstakling sem hefur áhugaverða sögu að segja. Allt er þetta hluti af sögu Vestmannaeyja – stóru málin jafnt sem litlu augnablikin.
Þátttaka lesenda er þar afar mikilvæg. Enginn miðill getur verið alls staðar og allra síst fámenn ritstjórn. Styrkur Eyjafrétta liggur því ekki aðeins hjá okkur á ritstjórninni heldur einnig hjá lesendum. Fréttaskotið úr næstu götu, myndin af óvenjulegum atburði, ábendingin um áhugaverðan Eyjamann eða spurningin sem einhver telur að þurfi að bera upp – allt getur þetta orðið að frétt sem skiptir samfélagið máli.
Ábendingar lesenda hafa oft orðið kveikjan að góðum fréttum og við hvetjum fólk til að halda áfram að hafa samband, senda okkur myndir og benda á áhugavert efni til umfjöllunar.
Fjölgun áskrifenda er okkur bæði mikil hvatning og staðfesting á því að starf Eyjafrétta skiptir máli. Hún gerir okkur kleift að þróa miðilinn áfram, bæta þjónustuna og leggja enn meiri áherslu á eigið og vandað efni.
Við þökkum öllum sem lesa, deila, senda okkur ábendingar og styðja útgáfuna með áskrift. Eyjafréttir eru fyrir Eyjamenn, um Eyjar og byggðar á virkri þátttöku samfélagsins. Við hlökkum til að halda þeirri vegferð áfram með ykkur.
Tryggvi Már Sæmundsson