Kjötsúpukvöld Karlakórsins á föstudag
Kjötsúpa, söngur og góður félagsskapur verða í boði á kjötsúpukvöldi Karlakórs Vestmannaeyja á föstudag. Ljósmynd/aðsend.

Karlakór Vestmannaeyja hefur starfsemi vetrarins á hinu árlega kjötsúpukvöldi í Kiwanishúsinu föstudaginn 18. september kl. 20.00. Öllum karlmönnum í Vestmannaeyjum er boðið að koma, gæða sér á kjötsúpu og kynna sér starf kórsins.

Kjötsúpukvöldið er kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á söng og góðum félagsskap að kynnast starfi Karlakórsins og jafnvel ganga til liðs við hann. Kórfélagar vonast til að sjá sem flest ný andlit og hvetja gesti til að taka einn eða tvo félaga með sér.

Óvirkir félagar eru jafnframt hvattir til að endurnýja kynnin við kórstarfið, en stefnt er að öflugu og skemmtilegu starfi í vetur. Í boði verða dýrindis kjötsúpa, léttar veitingar, söngur og góður félagsskapur ,segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburði Karlakórsins.

Nýjustu fréttir

KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.