Pysjurnar bæði fleiri og þyngri í ár
Alls hafa 4.566 pysjur verið skráðar og er meðalþyngdin 60 grömmum meiri en í fyrra
Lundapysja við það að fá frelsið. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Alls hafa 4.566 pysjur verið skráðar í Vestmannaeyjum það sem af er pysjutímabilinu, samkvæmt nýjustu tölum á lundi.is. Af þeim hafa 1.095 pysjur verið vigtaðar og er meðalþyngdin 303 grömm. Sú þyngsta hefur vegið 650 grömm en sú léttasta 200 grömm.

Tölurnar eru athyglisverðar í samanburði við síðasta ár. Þá voru alls 3.283 pysjur skráðar og 1.045 þeirra vigtaðar. Meðalþyngdin var 243 grömm og er hún því 60 grömmum meiri í ár. Meðalþyngd pysjanna í ár er einnig talsvert yfir meðaltali allra ára frá upphafi Pysjueftirlitsins, sem er 264,5 grömm.

Pysjutímabilið í fyrra var það lengsta frá því Pysjueftirlitið hóf starfsemi. Fyrsta pysjan fannst 29. júlí og sú síðasta 2. október og stóð tímabilið því yfir í rúmar níu vikur. Að jafnaði hefur pysjutímabilið staðið í 38 daga þau 23 ár sem eftirlitið hefur verið starfrækt.

Fáar og léttar pysjur ásamt löngu pysjutímabili í fyrra þóttu benda til þess að skortur hefði verið á góðu æti. Staðan nú er önnur, enda eru pysjurnar bæði fleiri og talsvert þyngri. Skráning pysjubjörgunarmanna veitir mikilvægar upplýsingar um fjölda pysja og ástand þeirra. Pysjuleitendur eru því hvattir til að skrá allar pysjur sem finnast á lundi.is.

Nýjustu fréttir

Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Erlingur stýrði Minden til sigurs í sínum fyrsta leik
Lærdómur liðinnar viku
Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
ÍBV tapaði stórt gegn FH í Kaplakrika
Vilja öflugri dráttarbát og aðkomu ríkisins að fjármögnun
Eyjafólk í Landsleikunum á RÚV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.