Nærri 8.500 gestir sóttu Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýninguna, IceFish 2026, sem fram fór dagana 22.–24. september. Þetta var fimmtánda sýningin frá upphafi og samkvæmt tilkynningu um sýninguna voru viðbrögð sýnenda afar jákvæð, bæði við aðsókninni og þeim viðskiptatækifærum sem sköpuðust.
IceFish hefur verið haldin frá árinu 1984 og þróast úr uppskeruhátíð íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegan vettvang fyrir sjávarútveg og fiskeldi. Meðal sýnenda að þessu sinni voru fyrirtæki frá Kanada og Japan.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra setti sýninguna. Í opnunarávarpi sínu vék hún að tæknibreytingum á þeim rúmlega fjörutíu árum sem sýningin hefur verið haldin, en lagði jafnframt áherslu á mikilvægi þess að fólk hittist og miðli reynslu.
„En eitt hefur þó haldist óbreytt alla tíð, þ.e. að framfarir byggjast á því að fólk hittist, beri saman bækur sínar og sé tilbúið að prófa í sameiningu betri leiðir.“
Í tilkynningunni er haft eftir forsvarsmönnum nokkurra fyrirtækja að sýningin hafi skapað góð tækifæri til samtala og viðskipta.
„Viðbrögðin voru einróma jákvæð. Allir voru mjög ánægðir, bæði með fjölda gesta og hversu frambærilegir gestirnir voru. Rétta fólkið úr sjávarútveginum mætti á sýninguna og allir nefndu að aðsóknin væri umtalsvert betri en þeir höfðu búist við,“ segir Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar.
Eirik Lillebudal, framkvæmdastjóri og meðstofnandi EquaFish, segir fyrirtækið hafa komið á sýninguna til að ræða við fiskeldisfólk á Íslandi. Þar hafi þó einnig gefist tækifæri til margra góðra funda með fulltrúum alþjóðlegs fiskeldis.
Atli Steinn Jónsson, framkvæmdastjóri og eigandi Kælingar, lýsir sömuleiðis miklum áhuga á framleiðsluvörum fyrirtækisins og segir sýninguna hafa heppnast afar vel.
Vaxandi þáttur fiskeldis endurspeglaðist meðal annars í nýrri Miðstöð fiskeldis á sýningunni. Þar tóku bæði nýir og rótgrónir sýnendur á móti gestum.
Einnig var haldin ný ráðstefna undir yfirskriftinni Aquaculture – Driving Sustainable Growth. Ólöf Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Kaldvík og stjórnarmaður í Hringborði fiskeldis, stýrði ráðstefnunni. Þar voru flutt sextán sérfræðileg erindi um áskoranir og valkosti í greininni.
Ráðstefnan 100% Fish for Profit var einnig haldin á IceFish undir stjórn Þórs Sigfússonar, stofnanda Íslenska sjávarklasans, og Alexöndru Leeper, framkvæmdastjóra klasans.
Tæplega 150 fagaðilar sóttu ráðstefnuna, þar sem íslenskir og erlendir fyrirlesarar fjölluðu meðal annars um nýja tækni, fullnýtingu sjávarafurða, markaði, rannsóknir og þróun. Fulltrúar úr alþjóðlegu neti sjávarklasa hittust jafnframt allir í fyrsta sinn á Íslandi og völdu sýninguna sem fundarstað.
Íslensku sjávarútvegsverðlaunin voru afhent í lok fyrsta sýningardags. Þar hlutu fyrirtæki og einstaklingar viðurkenningar fyrir árangur í nýsköpun, sjávarútvegi og fiskeldi, auk þess sem veitt voru heiðursverðlaun fyrir skipstjórn og ævistarf. GreenFish var meðal verðlaunahafa og hlaut viðurkenningu sem besta nýja sprotafyrirtækið.
IceFish verður næst haldin árið 2028. Fyrstu áætlanir gera ráð fyrir að sýningin fari fram dagana 12.–14. september það ár.