Rúmlega þriggja metra dýpi í Landeyjahöfn – siglingar háðar sjávarföllum

Dýpi í Landeyjahöfn mældist rúmlega þrír metrar fyrr í dag og hafa veður síðustu daga haft áhrif á dýpið í höfninni. Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis en stefnir á fyrstu tvær ferðir morgundagsins til Landeyjahafnar á flóði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi. Vonir standa til að hægt verði að dýpka í Landeyjahöfn í […]

Nærri 8.500 gestir sóttu IceFish

Nærri 8.500 gestir sóttu Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýninguna, IceFish 2026, sem fram fór dagana 22.–24. september. Þetta var fimmtánda sýningin frá upphafi og samkvæmt tilkynningu um sýninguna voru viðbrögð sýnenda afar jákvæð, bæði við aðsókninni og þeim viðskiptatækifærum sem sköpuðust. IceFish hefur verið haldin frá árinu 1984 og þróast úr uppskeruhátíð íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegan […]

Vatnslekinn rakinn til ónýtrar lagnar við Sprönguna

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að ráðist verði í endurnýjun á gamalli vatnslögn við Sprönguna. Lögnin er sögð ónýt og úr henni seitlar vatn. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er 4,5 milljónir króna. Málið var tekið fyrir á aukafundi ráðsins í dag, föstudaginn 2. október. Gamla lögnin sér Básaskersbryggju, Bæjarbryggju og Nausthamri fyrir ferskvatni. Hafnarstjóri […]

Eyjablikksmótið fer fram í Vestmannaeyjum um helgina

Eyjablikksmótið í handbolta fer fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja um helgina. Mótið hefst í dag, föstudag, og stendur til sunnudags. Á mótinu keppa 5. flokkur karla, yngra ár, og 5. flokkur kvenna, yngra ár. Fjöldi leikja verður á dagskrá alla helgina og má búast við miklu fjöri og góðri stemningu. Fyrstu leikir mótsins hefjast í dag, […]

Síðasti opni fundur Vina í bata á mánudag

Kirkja Safnadarhe

Síðasti opni kynningarfundur Vina í bata verður mánudaginn 5. október kl. 18.30 í Betri stofu Safnaðarheimilis Landakirkju. Góður hópur karla hefur þegar myndast en pláss er fyrir fleiri konur í starfið. Nýtt tímabil Vina í bata hófst 21. september og hafa fyrstu fundirnir verið öllum opnir. Eftir fundinn á mánudag verður hópunum lokað. Starfið hentar […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.