Dýpi í Landeyjahöfn mældist rúmlega þrír metrar fyrr í dag og hafa veður síðustu daga haft áhrif á dýpið í höfninni. Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis en stefnir á fyrstu tvær ferðir morgundagsins til Landeyjahafnar á flóði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi. Vonir standa til að hægt verði að dýpka í Landeyjahöfn í nótt og á morgun. Meðan dýpið er takmarkað eru siglingar til og frá höfninni einnig háðar sjávarföllum.
Brottför frá Vestmannaeyjum var færð til klukkan 16:00 í stað klukkan 17:00. Brottför frá Þorlákshöfn verður klukkan 19:45 í stað klukkan 20:45.
Ferðir klukkan 18:15, 19:30, 22:00 og 23:15 falla niður. Farþegar sem áttu bókað í þær ferðir eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til að færa bókun sína.
Laugardaginn 3. október stefnir Herjólfur á að sigla fyrstu tvær ferðir dagsins til Landeyjahafnar á flóði. Brottfarir verða samkvæmt því:
Tilkynning um siglingar síðar um daginn verður gefin út fyrir klukkan 11:00 á morgun.
Farþegar eru minntir á að á þessum árstíma geti siglingar færst milli hafna og því sé ekki æskilegt að skilja farartæki eftir í Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn. Þeir sem ætla að nýta gistirými ferjunnar þurfa jafnframt að koma með eigin búnað.