Síðasti opni fundur Vina í bata á mánudag
Kirkja Safnadarhe
Fundað er í betri stofu Safnaðarheimilis Landakirkju. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Síðasti opni kynningarfundur Vina í bata verður mánudaginn 5. október kl. 18.30 í Betri stofu Safnaðarheimilis Landakirkju. Góður hópur karla hefur þegar myndast en pláss er fyrir fleiri konur í starfið.

Nýtt tímabil Vina í bata hófst 21. september og hafa fyrstu fundirnir verið öllum opnir. Eftir fundinn á mánudag verður hópunum lokað.

Starfið hentar öllum sem vilja vinna með tilfinningar sínar af einlægni. Nafnleynd, trúnaður og traust eru höfð að leiðarljósi og stuðst er við vinnubókina Tólf sporin – andlegt ferðalag, sem fæst í bókabúðinni.

Öll sem hafa áhuga á að kynna sér starfið eru velkomin á fundinn. Nánari upplýsingar um Vini í bata má finna á viniribata.is.

Nýjustu fréttir

Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 
Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Líkamsrækt við Hástein skrefi nær – tveir sátu hjá
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.