Eyjablikksmótið fer fram í Vestmannaeyjum um helgina
Frá Eyjablikksmótinu í vor. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Eyjablikksmótið í handbolta fer fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja um helgina. Mótið hefst í dag, föstudag, og stendur til sunnudags.

Á mótinu keppa 5. flokkur karla, yngra ár, og 5. flokkur kvenna, yngra ár. Fjöldi leikja verður á dagskrá alla helgina og má búast við miklu fjöri og góðri stemningu.

Fyrstu leikir mótsins hefjast í dag, föstudag, klukkan 15:00 og verður leikið fram til 21:40.

Á laugardag hefjast leikir klukkan 8:20 og standa til 17:40. Um kvöldið fer svo fram leikur milli Landsliðs og Pressuliðs í sal 2.

Á sunnudag hefjast leikir aftur klukkan 8:20 og lýkur mótinu klukkan 13:00.

Það verður því nóg um að vera í Íþróttamiðstöðinni um helgina og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta og fylgjast með ungu og efnilegu íþróttafólki etja kappi.

Hægt er sjá leikjaplan mótsins með því að smella hér.

Nýjustu fréttir

Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 
Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Líkamsrækt við Hástein skrefi nær – tveir sátu hjá
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.