Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og starfsfólk atvinnuvegaráðuneytisins heimsóttu Grupeixe, annað af tveimur fyrirtækjum Vinnslustöðvarinnar í Portúgal, síðastliðinn föstudag. Þar kynntu gestirnir sér starfsemina og mikilvægi íslensks saltfisks á Portúgalsmarkaði.
Þetta kemur fram í umfjöllun á vef Vinnslustöðvarinnar. Ráðherra og starfsfólk ráðuneytisins voru í nokkurra daga ferð um Portúgal ásamt mökum sínum og höfðu viðkomu hjá Grupeixe.
Grupeixe vinnur saltfisk, aðallega frá Íslandi, áfram í hefðbundinn þurrkaðan saltfisk sem seldur er sem fullbúin neytendavara. Vinnslustöðin eignaðist einnig fyrirtækið Esbal í Portúgal í vor. Það framleiðir útvatnaða, frysta saltfiskbita sem eru tilbúnir til eldunar.
Nuno Araújo, framkvæmdastjóri Grupeixe og konsúll Íslands í Portúgal, tók á móti gestunum ásamt starfsfólki fyrirtækisins. Sverrir Haraldsson frá Vinnslustöðinni var einnig á staðnum. Gestirnir skoðuðu vinnsluhúsið og vörurnar og fengu kynningu á vinnsluferlum.
Nuno segir þorskinn hafa sérstakan sess í portúgölsku samfélagi. „Þorskurinn er órjúfanlegur hluti af portúgalskri menningu og matargerð, þótt hann finnist ekki í portúgölskum sjó. Í meira en 400 ár hefur hann verið hluti af sögu okkar, hefðum og daglegu lífi, og er nú eitt sterkasta tákn portúgalskrar matarmenningar.“
Að sögn Nunos hefur íslenskur þorskur öðlast mjög gott orðspor í Portúgal fyrir gæði, stöðugleika og uppruna. „Uppruninn skiptir portúgalska neytendur miklu máli og Ísland er tengt við hágæðaþorsk. Í þessu samhengi er Ísland ekki aðeins hráefnisbirgir heldur er landið hluti af menningarlegri hefð og matargerðarhefð í Portúgal.“
Hann segir ánægjulegt að fá tækifæri til að sýna hvernig unnið sé með vöruna í Portúgal, sérstaklega þegar gestirnir starfi að málefnum sjávarútvegs í íslenska stjórnkerfinu.
Sverrir tekur undir mikilvægi þess að kynna starfsemina og markaðinn fyrir fólki úr stjórnkerfinu. „Þessi heimsókn var afar góð og frábært að fá þetta fólk til okkar. Margt af því hefur vissulega mikla þekkingu á sjávarútvegi en ég held að allir hafi farið frá okkur með aukinn skilning á sérstöðu og mikilvægi saltaðs þorsks á Portúgalsmarkaði.“
Sverrir segir sérstöðu íslensks þorsks í Portúgal ekki eiga sér beina hliðstæðu á öllum mörkuðum fyrir íslenskar sjávarafurðir. „Hér höfum við markað sem metur þorsk frá Íslandi sérstaklega hátt, vegna þess að hann er frá Íslandi. Þá sögu er því miður ekki hægt að segja um allar sjávarafurðir.“
Hann nefnir síldarafurðir í Póllandi sem dæmi. Í þáttum N4 um uppsjávariðnað og helstu markaði hafi komið fram að uppruni fisksins væri ekki tiltekinn á merkingum til neytenda. Þar hafi meira vægi að varan sé talin pólsk, enda fari fullvinnslan fram í Póllandi.
Sverrir segir markaði fyrir þorsk jafnframt ólíka. Víða sé hann ekki aðgreindur sérstaklega eftir uppruna og jafnvel ekki eftir tegundum. „Það er því alveg klárt mál að þorskur er alls ekki einsleit heimsmarkaðsvara.“
Því sé mikilvægt að sinna Portúgalsmarkaði vel og nýta sérstöðu íslensks þorsks þar. Til þess þurfi að tryggja gæði, magn og afhendingaröryggi. „Lykillinn að því er samþætt keðja frá veiðum og vinnslu alla leið til neytenda“, segir Sverrir.
Að heimsókninni lokinni snæddu gestirnir hádegisverð þar sem boðið var upp á saltfisk frá Vinnslustöðinni og Grupeixe. Samkvæmt umfjöllun fyrirtækisins mæltist hann vel fyrir og reyndir saltfiskunnendur töldu hann jafnvel þann besta sem þeir hefðu smakkað.
Fleiri myndir frá heimsókninni má sjá á vef Vinnslustöðvarinnar og á facebook-síðu fyrirtækisins.