Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
LAXEY horfir til Kínamarkaðar :: Lax frá Eyjum kominn á borð þriggja Michelin-stjörnu veitingastaðar :: Ný tækni Héðins til fullnýtingar hliðarafurða prófuð
Gunnar Páll framleiðslu- og sölustjóri með myndarlegan Laxeyjarlax. 
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Mikið hefur verið um að vera hjá LAXEY í Vestmannaeyjum að undanförnu samhliða áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins í Viðlagafjöru. Kínverski markaðurinn er meðal þeirra markaða sem fyrirtækið horfir til, lax frá LAXEY er kominn á borð þriggja Michelin-stjörnu veitingastaðar í Kaupmannahöfn og fyrstu prófanir hafa farið fram á nýrri tækni Héðins til fullnýtingar hliðarafurða frá eldinu. 

Vestmannaeyjar og uppruni laxins eru hafðir í forgrunni í markaðssetningu Laxeyjar. Það kom vel í ljós þegar Qin Weiqin, betur þekkt sem Salmon Queen, heimsótti Eyjar og Laxey og kynnti laxinn og söguna á bak við hann fyrir kínverskum neytendum. 

Qin Weiqin selur lax í Kína, meðal annars í gegnum samfélagsmiðla, og hefur verið á Íslandi til að auka sýnileika á íslenskum laxi í Kína. Í heimsókn sinni kynnti hún sér starfsemi Laxeyjar en fékk jafnframt að upplifa Vestmannaeyjar. Hún sleppti lundapysju á haf út, sá norðurljósin og hitti Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra.

Laxadrottningin frá Kína fékk upplifa Eyjarnar í allri sinni dýrð.

Var sent út í beinu streymi frá Eyjum til fylgjenda Salmon Queen í Kína þar sem LAXEY, laxinn og uppruni hans í Vestmannaeyjum voru kynnt.  „Við viljum að fólk viti ekki aðeins hvaðan laxinn kemur heldur líka hvað stendur að baki honum. Eyjarnar, fólkið og náttúran eru hluti af okkar sögu,“ segir Óskar Jósúason, upplýsingafulltrúi LAXEY. 

Hann segir kínverska markaðinn áhugaverðan fyrir fyrirtækið, ekki síst í ljósi þess að beint vikulegt fraktflug milli Íslands og Kína hefst í október. Það geti skapað ný tækifæri til að koma ferskum íslenskum laxi hratt á kínverskan markað. 

„Neytendur vilja í auknum mæli vita hvaðan maturinn kemur, hvernig hann er framleiddur og hvaða saga liggur að baki. Þar teljum við okkur hafa sterka stöðu,“ segir Óskar. 

Þrjár Michelin-stjörnur 

LAXEY horfir þó víðar en til Kína. Lax frá fyrirtækinu er nú kominn á borð eins virtasta veitingastaðar Norðurlanda. Kadeau í Kaupmannahöfn, sem státar af þremur Michelin-stjörnum, hefur valið lax frá Vestmannaeyjum í matargerð sína. 

„Þetta er auðvitað gríðarlega flott viðurkenning fyrir okkur. Þegar veitingastaður af þessum gæðum velur hráefni frá Laxey segir það okkur að við séum að gera eitthvað rétt,“ segir Óskar. 

Kadeau byggir matargerð sína á sterkum tengslum við náttúru og uppruna hráefnis. Lax hefur um árabil verið hluti af matargerð staðarins, meðal annars í tengslum við hefðbundnar reykingaraðferðir frá Bornholm.  Kyumin hjá Kadeau segir valið á Laxey meðal annars byggjast á framleiðsluaðferðinni. Landeldið bjóði upp á ábyrgari leið í laxeldi, með minna álagi á villta fiskistofna og hafsvæði. 

„Það skiptir okkur miklu að fólk sem gerir miklar kröfur til hráefnisins sjái gæði í laxinum okkar. Þetta snýst ekki aðeins um bragð og áferð heldur líka um hvernig fiskurinn er alinn, rekjanleika og uppruna. Þar teljum við okkur hafa sterka sögu að segja,“ segir Óskar. 

Laxeyjar-laxinn hefur þegar farið víðar. Nýverið var hann á boðstólum á sérstökum kvöldverði í Toronto þar sem Kadeau tók höndum saman við kanadíska matreiðslumanninn Jeremy Charles og Prime Seafood Palace. 

„Við erum að byggja upp fyrirtæki hér í Vestmannaeyjum en markaðurinn er alþjóðlegur. Þegar laxinn okkar er kominn á borð hjá framúrskarandi matreiðslufólki í Kaupmannahöfn og Toronto vekur það athygli á því sem við erum að gera hér í Eyjum,“ segir Óskar. 

Úr hliðarafurð í verðmæti 

Samhliða uppbyggingu eldisins og markaðssókninni er unnið að því að fullnýta það sem fellur til við framleiðsluna. Mikilvægum áfanga var nýverið náð þegar fyrstu prófanir fóru fram á nýju kerfi Héðins til að þurrka seyru sem fellur til við laxeldið. 

Lausnin er þróuð af Héðni og byggir á nýrri span-tækni. Verkefnið er enn á þróunarstigi og kerfið því ekki komið í reglubundinn rekstur. Aðeins 16 mánuðir liðu frá því fyrsta hugmyndin kviknaði þar til komið var að fyrstu prófunum hjá Laxey. 

„Markmiðið er í raun að breyta því sem áður var hliðarstraumur í verðmæta afurð,“ segir Eðvarð Ingi, framkvæmdastjóri Héðins.  Með tækninni er unnið að því að þurrka seyruna þannig að hægt verði að nýta hana, meðal annars til áburðarframleiðslu. Síðar gætu einnig skapast möguleikar á nýtingu hennar til orkuframleiðslu. 

Tæknin er rafdrifin og þróuð með það að markmiði að nota mun minni orku en hefðbundnar þurrkunaraðferðir. Kerfið krefst jafnframt aðeins um þriðjungs þess rýmis sem eldri tækni þyrfti og stefnt er að einfaldari notkun og aukinni sjálfvirkni. Takist verkefnið eins og stefnt er að gæti það stuðlað að betri nýtingu hliðarafurða, aukinni hringrás í framleiðslunni og frekari verðmætasköpun. 

Þannig teygir uppbygging Laxeyjar í Vestmannaeyjum anga sína sífellt víðar. Laxinn er þegar kominn á borð matreiðslufólks í Kaupmannahöfn og Toronto, Kínamarkaður er í sigtinu og á sama tíma er unnið að því í Eyjum að nýta betur það sem fellur til við framleiðsluna. 

„Þegar lax frá Laxey ratar á borð neytenda eða inn á veitingastaði erlendis viljum við að Vestmannaeyjar fylgi honum. Samfélagið, náttúran og uppruninn eru hluti af afurðinni,“ segir Óskar. 

Réttur á þriggja stjörnu Micheiln réttinum þar sem lax frá Laxey er í aðalhlutverki.

 

Afurð úr seyrunni lætur ekki mikið yfir sér en gæti orðið dýrmæt í framtíðinni.

Nýjustu fréttir

Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.