Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Mun stýra nýjum viðtalsþætti í mynd á eyjafrettir.is :: Fyrstu tveir þættirnir fyrirhugaðir í október
Svava Kristín Grétarsdóttir mun stýra nýjum sjónvarpsþætti sem sýndur verður á vef Eyjafrétta. Stefnt er að því að fyrstu tveir þættirnir komi út í október.

Svava Kristín Grétarsdóttir, fjölmiðlakona, hefur gengið til liðs við Eyjafréttir og mun stýra nýjum sjónvarpsþætti sem sýndur verður á vef Eyjafrétta. Þar fær hún til sín áhugaverða viðmælendur til samtals um lífið í Eyjum, málefni líðandi stundar og það sem fólk hefur tekið sér fyrir hendur. Viðtölin verða tekin upp í mynd og hljóði og geta áhorfendur horft á þættina á vefnum.

„Ég hlakka mikið til að fara af stað með þetta verkefni hjá Eyjafréttum. Hér í Eyjum er fullt af áhugaverðu fólki og sögum sem mig langar að gefa meira rými. Hugmyndin er að eiga góð samtöl um lífið, samfélagið og það sem viðmælendur hafa tekið sér fyrir hendur,“ segir Svava Kristín.

Svava Kristín hefur víðtæka reynslu af fjölmiðlastörfum. Hún hóf að flytja íþróttafréttir á Stöð 2 árið 2015 og sinnti um árabil íþróttafréttum og viðtölum á Stöð 2 og íþróttaumfjöllun á Vísi. Þá stýrði hún umfjöllun um kvennahandbolta í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport. Hún lét af störfum hjá Stöð 2 árið 2025 og flutti aftur til heimabæjar síns, Vestmannaeyja.

Undirbúningur þáttanna er hafinn og stefnt er að því að fyrstu tveir þættirnir komi út í október. Nánari upplýsingar verða kynntar þegar nær dregur útgáfu.

Með viðtalsþættinum bætist ný leið við miðlun Eyjafrétta. Þættirnir munu gefa svigrúm fyrir lengri samtöl og bæta við umfjöllun um samfélagið í Vestmannaeyjum sem lesendur þekkja af vefnum og úr blaðinu.

„Það er mikill fengur að fá Svövu Kristínu til liðs við okkur. Hún kemur með góða reynslu af viðtölum og þáttastjórn og við hlökkum til að sjá hana móta þessa nýju miðlunarleið hjá Eyjafréttum,“ segir Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Jafntefli hjá Heimi og Írum gegn Ísrael
Fimm ferðir til Landeyjahafnar á mánudag – dýpkun að hefjast
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.