Eyjamaðurinn Arnar Pétursson, þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta, hefur valið 18 leikmenn sem koma saman í Póllandi mánudaginn 19. október. Þar mun liðið leika tvo vináttulandsleiki gegn heimakonum. Leikirnir fara fram fimmtudaginn 22. október og laugardaginn 24. október.
Þetta er síðasta verkefni hópsins áður en liðið kemur saman á ný í lok nóvember til lokaundirbúnings fyrir Evrópumótið, sem hefst í desember í Rúmeníu.
Þrjár Eyjakonur eru í leikmannahópi Arnars. Það eru Díana Dögg Magnúsdóttir, leikmaður Blomberg-Lippe, Elísa Elíasdóttir, leikmaður Vals, og Sandra Erlingsdóttir, leikmaður ÍBV.
Markmenn
Hafdís Renötudóttir, Valur (80/5)
Sara Sif Helgadóttir, Haukar (25/0)
Ethel Gyða Bjarnasen, Fram (1/0)
Aðrir leikmenn
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Thuringer HC (16/11)
Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg Lippe (75/104)
Elín Klara Þorkelsdóttir, Savehof (37/145)
Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg Lippe (42/90)
Elísa Elíasdóttir, Valur (33/33)
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (24/39)
Katrín Tinna Jensdóttir, HH Elite (37/42)
Lilja Ágústsdóttir, Sachsen Zwickau (27/19)
Lovísa Thompson, Benfica (41/75)
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (11/1)
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (14/16)
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (49/204)
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (7/12)
Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (7/2)