Á fimmta tug kvenna á fyrstu æfingu Kvennakórs Vestmannaeyja
Á fimmta tug kvenna mætti á fyrstu æfingu Kvennakórs Vestmannaeyja

Á fimmta tug kvenna mættu galvaskar á fyrstu æfingu hins nýstofnaða Kvennakórs Vestmannaeyja. “Þrátt fyrir að hafa ekki verið 100% var þetta svo ofar öllum vonum og væntingum. Samhljómurinn og þéttleikinn í kórnum er eitthvað sem ég held að enginn hafi búist við á fyrstu æfingu,” segir Kristín Halldórsdóttir, forsprakki og formaður hins nýja kórs á Fésbókarsíðu sinni. Kórinn æfir á mánudagskvöldum kl. 20.00 og eru allar konur velkomnar að sögn Kristínar.

Það verður spennandi að fylgjast með þessum nýja kór á næstu misserum.

Nýjustu fréttir

Spegilmyndir í morgunblíðunni
Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.