6-0

Það var merkilegt að þegar ferðamannastraumurinn var í hámarki til Íslands ákváðu þáverandi bæjaryfirvöld að taka ekki þátt í því ævintýri og leggja niður starf ferða- og kynningarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar. Engin hefur því sinnt slíku starfi síðustu árin og á meðan bruna ferðamennirnir framhjá Landeyjahafnarvegi í þúsunda vís á dag. Þrátt fyrir að höfnin sé opin. Það veit enginn þeirra af Vestmannaeyjum. […]
Miðasalan fer vel af stað og góð skráning í rútuferðir

Miðasala fyrir undanúrslitaleik ÍBV og Hauka í Coka cola bikarnum er hafin. Leikurinn fer fram á fimmtudaginn 5.mars í Laugardalshöll, klukkan 18:00. Miðasala fer fram í Íþróttamiðstöðinni og verða miðar til sölu þar fram á miðvikudag. Allur aðgangseyrir fyrir þessa miða rennur beint til ÍBV. Miðaverð er 2.000 kr.- fyrir fullorðna og 500 kr.- fyrir börn (miðast […]
Á fimmta tug kvenna á fyrstu æfingu Kvennakórs Vestmannaeyja

Á fimmta tug kvenna mættu galvaskar á fyrstu æfingu hins nýstofnaða Kvennakórs Vestmannaeyja. “Þrátt fyrir að hafa ekki verið 100% var þetta svo ofar öllum vonum og væntingum. Samhljómurinn og þéttleikinn í kórnum er eitthvað sem ég held að enginn hafi búist við á fyrstu æfingu,” segir Kristín Halldórsdóttir, forsprakki og formaður hins nýja kórs […]
Geisli nýr endursöluaðili Símans

Geisli er nýr endursöluaðili Símans í Vestmannaeyjum. Af því tilefni verða ráðgjafar Símans á staðnum til að veita ráðgjöf til nýrra og núverandi viðskiptavina, virkja rafræn skilríki og fleira. Þau verða á staðnum í dag þriðjudag frá klukkan 13 til 18 og miðvikudag og fimmtudag frá 10 til 18. Heitt á könnunni og með því. […]
Góð úrslit í Lengjubikar karla

Undirbúningstímabilið fyrir sumarið er á fullu og það sem af er hefur árangur karlaliðsins verið góður. Í Lengjubikarnum situr liðið í þriðja sæti síns riðils með tvo sigra og eitt tap. ÍBV vann stórsigur 5:0 á móti Víkingi Ólafsvík og sigraði einnig lið Stjörnunnar 2:1. Tapið kom á móti Val síðastliðna helgi en Valur vann […]
Eyjarnar gera það gott

Skip Bergs-Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, komu bæði til hafnar aðfaranótt sunnudags með fullfermi eftir stutta veiðiferð. Skipin létu úr höfn á föstudag og komu til hafnar um 34 tímum síðar. Heimasíðan heyrði í Birgi Þór Sverrissyni skipstjóra á Vestmannaey og spurði hvort þetta væri ekki óvenju góður afli. „Þetta er mjög góður afli […]