Eyjarnar gera það gott

Skip Bergs-Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, komu bæði til hafnar aðfaranótt sunnudags með fullfermi eftir stutta veiðiferð. Skipin létu úr höfn á föstudag og komu til hafnar um 34 tímum síðar. Heimasíðan heyrði í Birgi Þór Sverrissyni skipstjóra á Vestmannaey og spurði hvort þetta væri ekki óvenju góður afli. „Þetta er mjög góður afli og það gekk allt vel í veiðiferðinni. Bæði skipin voru að veiðum á Selvogsbankanum og aflinn var mestmegnis þorskur, gullfallegur vertíðarfiskur. Nú er verið að landa úr skipunum og það er komin skítabræla þannig að við förum ekki út fyrr en seint í kvöld eða á morgun,“ segir Birgir Þór.

svn.is

Nýjustu fréttir

Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.