Miðasalan fer vel af stað og góð skráning í rútuferðir

Miðasala fyrir undanúrslitaleik ÍBV og Hauka í Coka cola bikarnum er hafin. Leikurinn fer fram á fimmtudaginn 5.mars í Laugardalshöll, klukkan 18:00. Miðasala fer fram í Íþróttamiðstöðinni og verða miðar til sölu þar fram á miðvikudag. Allur aðgangseyrir fyrir þessa miða rennur beint til ÍBV.

Miðaverð er 2.000 kr.- fyrir fullorðna og 500 kr.- fyrir börn (miðast við börn á grunnskólaaldri)

Vilmar Þór Bjarnason hjá handknattleiks deild ÍBV er mjög ánægðu með hvernig salan hefur farið af stað. Hann vildi sérstaklega hvetja Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu til að nota miðasöluna á tix.is þar sem ÍBV fær jafnframt þann aðgangseyri sem fæst fyrir sölu þeirra miða.

Hérna er svo hlekkur inn á rafrænu miðasöluna ÍBV: https://tix.is/is/specialoffer/tickets/9770/

Vilmar benti á að aðgangseyrir þeirra miða sem seldir eru á leikstað á fimmtudag fara beint til HSÍ. Skráning í rútuferðir fór af stað í gær og hafa rúmlega 50 manns skráð sig í þær.

Hér er hægt að skrá sig í rútuferðir.

“Það er góð stemmning í hópnum og allir klárir. Við finnum fyrir miklum meðbyr í bænum enda margir spenntir fyrir fimmtudeginum,” sagði Vilmar hress að vanda.

 

Nýjustu fréttir

Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.