Upphaf aldauðans II Sýning í Eldheimum
Gísli Pálsson höfundur bókarinnar um geirfuglinn svarar spurningum barnanna

Listasafn ASÍ stendur fyrir myndlistarsýningum, barnanámskeiðum og vinnustofum barna á fjórum stöðum á landinu. Verkefnið tengist útkomu bókar Gísla Pálssonar um FUGLINN SEM GAT EKKI FLOGIÐ. Fyrstu viðkomustaðir sýningarinnar voru í Ásmundarsal við Freyjugötu og Listagilinu á Akureyri. Eldheimar eru næsti viðkomustaður og sýningin verður opin á opnunartíma safnsins kl. 13:30 – 16:30 laugardaginn 21. og sunnudaginn 22. nóvember.

Bókin verður til sölu í safninu og laugardaginn 21. nóvember  mun Gísli Pálsson árita bók sína og spjalla við gesti sýningarinnar. Boðið verður uppá léttar veitingar og allir eru velkomnir.

Vegna smithættu verður ekki hægt að bjóða uppá vinnusvæði barna á sýningunni en börn sem líta við í Eldheimum þessa helgi fá teiknibók að gjöf sem þau geta tekið með sér heim og teiknað í myndir af horfnum fuglum og öðrum dýrum sem eru í útrýmingarhættu.

Reglur um sóttvarnir setja verkefninu nokkrar skorður þar sem hámark 10 manns mega vera inni í einu og skylda að bera grímu.

Nýjustu fréttir

Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
ÍBV og KA skildu jöfn á Hásteinsvelli
Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar
Djamm Original heldur í hefðirnar  – Frá Bridgerton í aldamótastuð
Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.