Skorar Guðrún Pál á hólm?
ljós­mynd/​Birg­ir Ísleif­ur Gunn­ars­son

Framboðsmál Sjálfstæðisflokksins eru til umfjöllunar í Morgunblaðinu í dag, í grein sem ber yfirskriftina kynslóðaskil í boði í prófkjörum íhaldsins. Þar er sagt frá að yngra fólk skori hið eldra á hólm og konur knýi á af krafti um allt land.

Í Suðurkjördæmi er greint frá að Guðrún Hafsteinsdóttir sé sögð stefna ákveðin á 1. sæti á lista Sjálfstæðismanna og bent er á að hún hafi nýverið fest sér lénið gudrunhafsteins.is. Segir í fréttinni að þar myndi hún skora á Pál Magnússon en hann sé veikari fyrir en ella vegna gagnrýni um að hann hafi ekki stutt flokkinn í bæjarstjórnarkosningum í Eyjum.

Guðrún Hafsteinsdóttir er Hvergerðingur, markaðsstjóri Kjörís og hefur m.a. gegnt formennsku í stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða og Samtaka iðnaðarins.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Haukum – Oddaleikur framundan
Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri
Allir út að plokka á Heimaey á morgun
Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum
VSV á stórsýningu í Barcelona: „Mikilvægt að vera sýnileg“
Vorhátíð Landakirkju
Byggjum þetta bara
ÍBV getur tryggt sæti í úrslitum með sigri í dag
viðburðir
26. apríl 2026
11:00
Stóri plokkdagurinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.