Eyjafólk kann að skemmta sér og öðrum

Mikil vinna liggur að  baki hverrar þjóðhátíðar, vinna sjálfboðaliða sem á lokasprettinum leggja nótt við dag til að allt verði klárt þegar gestir mæta. Það eru líka margir að störfum á hátíðinni sjálfri, sjálfboðaliðar, fólk í löggæslu, eftirliti og viðbragðsaðilar í heilbrigðisþjónustu. Ekki má heldur gleyma skemmtikröftum sem vita fátt skemmtilegra en að koma fram í Herjólfsdal og skemmta okkur. Síðast en ekki síst á fólkið sem hreinsar Dalinn á hverjum morgni mikinn heiður skilinn.

Og allir fá sinn skammt á dagskránni, börnin, unga fólkið og þeir sem eldri eru og allir  sameinast í Brekkunni á kvöldin.  Eyjafólk er flestum betra í að skemmta sér og öðrum og vilja skapa sjálfum sér og gestum sem bestar minningar frá hátíðinni, svo vitnað sé í orð Írisar bæjarstjóra á Rás 2 rétt í þessu.

Ég gagnrýndi RÚV á föstudagskvöldið þegar enga frétt var að finna í kvöldfréttatíma frá Þjóðhátíð en úr því var bætt í gærkvöldi með ágætri samantekt. Annar stjórnanda eftirmiðdagsþáttar Rásar tvö er í Eyjum og er dugleg að segja frá því sem fyrir augu ber og taka viðtöl.

Það ber að virða en eins sakna ég, brennan á Fjósakletti á föstudagskvöldið sást ekki í fréttinni á RÚV. Kannski sjáum við flugeldasýninguna frá í gærkvöldi í fréttunum kvöld og Brekkusönginn á morgun. Allt hápunktar sem enginn leikur eftir.

En þeir eru margir sem skrásetja hátíðina í máli og myndum og hafa glatt mig og konuna sem hefur náð gleði sinni á ný eftir dapurt föstudagskvöld. Einn skrásetjaranna er Addi í London sem á þessari myndir.

Bendi svo á streymið frá skemmtun og Brekkusöng frá Herjólfsdal í kvöld. Þess ætlum við að njóta í útlegðinni í Garðabæ.

Með von um gott og farsælt kvöld og nótt.

Ómar Garðarsson.

Nýjustu fréttir

Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð
Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum
Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.