Heimir orðaður við Val
Heimir Hallgrímsson.

Heimir Hallgrímsson hefur verið orðaður við þjálfun karlaliðs Vals í fótbolta fyrir næsta tímabil. Heimir hefur undanfarna mánuði verið á leikskýrslu hjá ÍBV sem aðstoðarþjálfari en hefur sést í stúkunni á leikjum Vals.

Valur hefur Ólaf Jóhannesson sem þjálfara núna, en hann tók við þegar Heimir Guðjónsson var látinn fara fyrr á tímabilinu. Ólafur er með samning út tímabilið.

Verði af því að Heimir fari til Vals mun hann hitta þar fyrir Eyjakonuna Elísu Viðarsdóttur sem hefur spilað með Val síðan hún kom heim úr atvinnumennsku erlendis.

Heimir Hallgrímsson hefur verið Hermanni Hreiðarssyni þjálfara ÍBV innan handar síðustu mánuði. Mynd: Hafliði Breiðfjörð hjá Fótbolti.net
Elísa Viðarsdóttir spilar með Val og gegnir lykilhlutverki í landsliðinu sem er nú hársbreidd frá því að tryggja sér sæti á HM kvenna. Mynd: Hafliði Breiðfjörð hjá Fótbolti.net

Nýjustu fréttir

Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.