Starfsfólks N1 við Friðarhöfn er komið í mikið jólaskap enda töluvert síðan að jólavörur fóru að berast. Helst ber þar að nefna sniðugar, ódýrar og sykurlausar gjafir í skóinn fyrir börnin en eftir að Stymmi Gísla byrjaði að vinna í N1 hefur samband okkar við jólasveinana aukist mikið. Fóru jólasveinarnir fram á að auka úrvalið í sykurlausum skógjöfum og urðum við auðvitað við því.
Þeir jólasveinar sem vilja lauma jólasælgæti í skó stilltra barna fá þær lausnir líka hjá N1 Í Vestmannaeyjum.
Hjá N1 í Vestmannaeyjum er að finna úrval af vönduðum vinnufatnði, allt frá ódýrum bolum upp í vandaða kuldagalla sem hafa sannað sig í íslenskri veðráttu.
Ágúst Halldórsson og hans fólk í N1 vildi minna Eyjamenn á vefverslun N1 en þar er hægt að panta og fá afhent, með skömmum afgreiðslutíma, hjá N1 í Vestmannaeyjum. Einnig minntu þau á þjónustu Dropp en sú þjónusta, að geta sótt pakkann sinn hjá N1 í Eyjum, hefur mælst afar vel fyrir.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst