Á fimmtu milljón króna til Vestmannaeyja
Verkefnastjórn Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga fjallaði um tillögur fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar, annars vegar og fagráðs menningar hins vegar, um úthlutun styrkveitinga til verkefna úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Um var að ræða fyrri úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands á árinu. Umsóknir að þessu sinni voru 133, þar af í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna 67 og 66 í flokki menningarverkefna.
Verkefnastjórn fór yfir tillögurnar og samþykkti að veita 89 verkefnum styrk. Samtals var úthlutað úr sjóðnum um 50 mkr. Samþykkt var að veita 36 verkefnum styrk í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna og 53 verkefnum í flokki menningarverkefna, um 25 mkr. í hvorum flokki.
Alls fengu ellefu aðilar í Vestmannaeyjum úthlutun og var heildar upphæð til þeirra 4.450.000,kr.
Í bjarma sjálfstæðis �?ekkingarsetur Vestmannaeyjar 150.000
Pysjusýning 2018 �?ekkingarsetur Vestmannaeyja ses 200.000
Sígild leikhúslög á goslokum Eldheimar 300.000
Sigfús Halldórsson og lögin hans Guðný Charlotta Harðardóttir 300.000
Eyjalagakeppni (val á Goslokalagi) Bandalag vestmanneyskra söngva- og tónskálda 350.000
Ungt fólk í tónlist Birgir Nielsen �?órsson 400.000
Lundaafbrigðin �?ekkingarsetur Vestmannaeyja ses 400.000
Myndir, músík og mósaík Helga Jónsdóttir 400.000
Samfélagsvæðing Safnanna �?ekkingarsetur Vestmannaeyja ses 450.000
Sunnansól og hægviðri Lúðrasveit Vestmannaeyja 500.000
Billit Lime ehf. 1.000.000

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.