Áætla að hefja lagfæringar næsta vor
Herj Heimakl
Heimaklettur er vinsæll hjá göngufólki en þar þarf nauðsynlega að ráðast í lagfæringar á gönguleiðinni. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Gönguslóði á Heimakletti er afar illa farinn og er það forgangsatriði að laga hann, að mati starfshóps sem falið var að skoða innviði með tilliti til ferðaþjónustu í Eyjum. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur nú þegar veitt styrk að fjárhæð 11.180.000 til verkefnisins. Styrkir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða miðast við 80% af áætluðum heildarkostnaði verkefnis hverju sinni en gert er ráð fyrir 20% mótframlagi sem getur verið í formi vinnuframlags.

Fram kom í afgreiðslu bæjarráðs í sumar að Heimaklettur sé forgangsverkefni og að huga þurfi að framlagi sveitarfélagsins, gera áætlun og kostnaðarmeta. Ljúka þarf við önnur verkefni sem hafa fengið styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Huga þarf að framlagi sveitarfélagsins, gera áætlanir og kostnaðarmeta.

Að sögn Brynjars Ólafssonar, framkvæmdarstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar er búið að meta ástandið á gönguleiðinni.

„Næsta skref er að fá stígahönnuð til að leysa þetta krefjandi verkefni og koma með tillögu að lagfæringum. Áætlað er að nýta vetrarmánuði undir þessa hönnunarvinnu og hefja lagfæringar næsta vor.“ segir hann í samtali við Eyjafréttir/Eyjar.net.

 

Nýjustu fréttir

Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.