Með tillögu inn í fjárhagsáætlanagerð um að gjaldskrár í A-hluta hækki aðeins um 2,5% leggur Vestmannaeyjabær sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi, vernda hag heimila og fyrirtækja og stuðla að efnahagslegum stöðugleika. Við styðjum þannig við verðbólgumarkmið Seðlabankans til þess að samningar haldi.
Verðbólga og háir vextir eru meðal stærstu áskorana sem íslensk heimili og fyrirtæki standa frammi fyrir í dag. Árangur í baráttunni við verðbólguna næst ekki með aðgerðum eins aðila heldur krefst sameiginlegs átaks. Ríki, sveitarfélög, fyrirtæki og launafólk þurfa öll að leggja sitt af mörkum.
Í þessu samhengi skiptir máli að sveitarfélög hugi að áhrifum eigin ákvarðana á verðlagsþróun og efnahagslegan stöðugleika.
Við í bæjarráði höfum því lagt til að hækkun gjaldskrár í A-hluta sveitarfélagsins verði aðeins um 2,5%.
Sú ákvörðun er ekki tekin vegna þess að kostnaður sveitarfélagsins hafi staðið í stað. Þvert á móti hefur rekstrarkostnaður víða hækkað eins og allir þekkja. Auðveldasta leiðin væri að velta þeim hækkunum áfram á íbúa og fyrirtæki. Við teljum hins vegar að nú sé mikilvægt að sýna aðhald og samfélagslega ábyrgð.
Háir vextir hafa reynst mörgum fjölskyldum þung byrði og aukinn framfærslukostnaður hefur þrengt að fjárhag heimilanna. Á sama tíma glímir atvinnulífið við hækkaðan fjármagns- og rekstrarkostnað.
Með hóflegri gjaldskrárhækkun viljum við draga úr þeim þrýstingi sem annars gæti lagst á íbúa og fyrirtæki. Það er mikilvægt að sveitarfélagið sé meðvitað um þá stöðu sem samfélagið allt stendur frammi fyrir.
Ákvörðunin er einnig skýr yfirlýsing um að Vestmannaeyjabær ætli að styðja við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Þegar opinberir aðilar sýna hóf og aðhald í eigin gjaldskráákvörðunum minnkar hættan á að kostnaðarhækkanir berist áfram út í verðlag.
Engin ein ákvörðun leysir verðbólguvandann. Hins vegar geta margar ábyrgar ákvarðanir saman skipt verulegu máli. Við viljum að sveitarfélagið sé hluti af lausninni en ekki vandanum.
Lægri verðbólga er forsenda þess að vextir geti lækkað til framtíðar. Það er hagsmunamál allra – heimila, fyrirtækja og sveitarfélagsins sjálfs.
Með því að gæta hófs í gjaldskrárhækkunum og reka sveitarfélagið af ábyrgð leggjum við okkar af mörkum til þess markmiðs. Á sama tíma kallar þessi stefna á skýra forgangsröðun í rekstri sveitarfélagsins.
Vestmannaeyjabær hefur lengi lagt áherslu á traustan rekstur og ábyrga fjármálastjórn. Ákvörðunin um 2,5% hækkun gjaldskráa í A-hluta er eðlilegt framhald þeirrar stefnu.
Á tímum þegar margir finna fyrir þrýstingi á heimilis- og fyrirtækjarekstri teljum við mikilvægt að sveitarfélagið sýni í verki að það skilji stöðuna. Með þessari ákvörðun tökum við ábyrgð og leggjum okkar af mörkum til að skapa stöðugra efnahagsumhverfi fyrir Vestmannaeyjar og landið allt.
Eyþór Harðarson
Formaður bæjarráðs Vestmannaeyja.