Að nálgast 2000 pysjur
20240815 233910
Stúlkur í pysjubjörgun. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Lundapysj­u­tím­inn stend­ur nú sem hæst og má búast við töluverðum fjölda pysja í byggð næstu nætur.

Á facebook-síðu Pysjueftirlitsins er sýnt graf þar sem má sjá fjölda pysja á dag , sem skráðar hafa verið inn í pysjueftirlitið á lundi.is. Einnig sýnir það meðalþyngd pysjanna hvern dag. Þar er líka lína sem sýnir meðalþyngd pysja öll árin sem pysjueftirlitið hefur verið starfrækt, eða árin 2003 – 2023 og sést þá vel hvað pysjurnar í ár eru þyngri en flest undanfarin ár.

Það er ekki að marka það að 14. ágúst hafi færri pysjur en dagarnir á undan. Það á bara eftir að skrá þær inn. Fjöldinn er enn á uppleið. Nú hafa 1892 pysjur verið skráðar, segir í færslunni.

Nýjustu fréttir

Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.