Æfingin þótti heppnast mjög vel
Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Flugslysaæfing var haldin á Vestmannaeyjaflugvelli síðastliðin fimmtudag. Þar átti flugvél með 22 um borð að hafa hlekst á í lendingu með þeim afleiðingum að margir slösuðust og eldar kviknuðu víða. Fjallað er um æfinguna á vefsíðu HSU.

Mjög góð þátttaka var á æfingunni og á fræðslu dagana á undan. Alls tóku þátt 50 starfsmenn HSU, þar má telja sjúkraflutningamenn, hjúkrunarfræðingar, læknar, sjúkraliðar, heilbrigðisgagnafræðingar, móttökuritar, starfsfólk úr rannsóknardeild og myndgreiningu svo eitthvað sé nefnt.

Æfingin var keyrð alveg frá slysavettvangi inn á söfnunarsvæði slasaðra sem var í flugstöðinni og vel mannað af heilbrigðisstarfsfólki, þaðan voru sjúklingarnir svo annað hvort fluttir á HSU í eyjum þar sem þeim var sinnt áfram með til dæmis röntgenmynd, spelkun og fleira, eða þeir mest slösuðu fluttir í þyrlu eða flugvél sem þó fluttu sjúklingana ekki í alvöru lengra.

Æfingin þótti heppnast mjög vel og var frábært að sjá svona góða þátttöku heilbrigðisstarfsfólks, en mjög mörg ár eru síðan æfing var keyrð síðast alla leið inn á heilsugæslu.

Samhliða flugslysaæfingunni var keyrð ný hópslysaáætlun HSU í Eyjum og heppnaðist vel. Eðlilega koma upp einhverjir hnökrar en til þess eru einmitt svona æfingar, til að læra af þeim, bæta verklag svo hægt sé að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks, segir í umfjöllun á vef Heilsbrigðisstofnunar Suðurlands.

Hér má sjá myndasyrpu og myndband frá æfingunni. Taka skal fram að ekki var um raunverulega sjúklinga að ræða.

Nýjustu fréttir

ÍBV í lykilstöðu eftir sigur gegn Haukum
Dagskráin á sumardaginn fyrsta
Tilboð upp á 480 milljónir í Ægisgötu 2
Barnamenningardagar settir í dag
Efri árin skipta máli
Alvarleg staða samgöngumála: Kallað eftir tafarlausum aðgerðum
Eldsneytisvandi í Eyjum
Segir þingmenn tala öðruvísi í Eyjum en í Reykjavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.