Af Fingrum fram á Háaloftinu 9. febrúar

Í tónleikaröðinni Af fingrum fram fær Jón Ólafsson til sín gesti og laðar fram þægilega og létta stemningu eins og honum einum er lagið. Einstakir spjalltónleikar þar sem áhorfendur komast í nálægð við tónlistarmenn sem aldrei fyrr. Eftir tíu ár í Salnum í Kópavogi ætlar Jón að heimsækja Eyjarnar þann 9. febrúar og verður gestur hans ekki af lakari endanum.

Stefán Hilmarsson er óumdeilanlega einn vinsælasti söngvari vorra tíma og hefur sýnt að hann er marghamur í söngefnunum. Hann mun sýna allar sínar bestu hliðar og rifja upp músík Sálarinnar og Pláhnetunnar auk þess sem af nógu er að taka þegar sólóferillinn er annars vegar. Stefán er með eindæmum skemmtilegur maður og mun sanna það á Háaloftinu þann 09. febrúar næstkomandi! Sérstakur gestur og sérlegur aðstoðarmaður er svo bassaleikarinn og textahöfundurinn Friðrik Sturluson, Sálu/ar/bróðir Stefáns.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 og húsið opnar kl. 19.15.
Miðasala er hafin á tix.is

Allar nánari upplýsingar: Daddi 896-6818 – bog@eyjar.is og á Facebooksíðu Háaloftsins er hægt að senda okkur fyrirspurnir.

Nýjustu fréttir

Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.