Af lögreglumálum
Lögreglan hafði í nógu að snúast í liðinni viku m.a. vegna fíkniefnamála, líkamsárása og annara verkefna sem komu inn á borð lögreglu. Helgin var frekar annasöm vegna hinna ýmsu mála sem upp komu og þurfti lögregla að aðstoða nokkra gesti öldurhúsanna sökum ölvunarástands þeirra.
Sl. föstudagskvöld haldlagði lögregla um 100 gr. af maríhúana, 50 gr. af amfetamíni og um 2 gr. af kókaíni sem fundust í fórum manns sem var að koma til Vestmannaeyja með Herjólfi. �?egar hefur verið send út fréttatilkynning vegna málsins og er vísað til hennar varðandi nánari upplýsingar.
Tvær líkamsárásir voru kærðar til lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar og var í báðum tilvikum um að ræða sama árásaraðila. Fyrri árásin átti sér stað að morgni 14. febrúar sl. þar sem tveir menn réðust á þann þriðja. Seinni árásin átti sér stað að morgni 15. febrúar sl. þar sem maður var skallaður í andlitið. Ekki er um alvarlega áverka að ræða í þessum tveimur tilvikum. Árásirnar áttu báðar sér stað á sama skemmtistaðnum. Málin eru í rannsókn.
Einn ökumaður var stöðvaður í vikunni grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sjö aðrar kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlöguma en þar eru flestar kærur vegna ólöglegrar lagninga ökutækja auk þess sem kærur liggja fyrir vanrækslu á að nota öryggisbelti við akstur.
Ein eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu en um var að ræða rúðubrot í bifreið sem stóð við Faxastíg aðfaranótt 15. febrúar sl. Ekki er vitað hver þarna var að verki en þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um hver þarna var að verki eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku en þarna hafði bifreið runnið aftan á aðra án þess þó að um mikið tjón hafi verði að ræða. Engin slys urðu á fólki í óhappinu.

Nýjustu fréttir

Sjötti þáttur af “Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma”
Niðurstaða útboðs vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð
Fjölmiðlafrumvarp afgreitt úr ríkisstjórn: Tók breytingum eftir samráð
Fjölskyldusaga – Lífsförunauturinn Þóra
Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða
Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Arnar Pétursson valdi leikmannahóp fyrir lokaleiki undankeppni EM
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.