Aflinn að mestu þorskur og ýsa
Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir fullfermi í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

“Við fengum aflann á Öræfagrunni og í Hornafjarðardýpinu og það var gott veður allan túrinn að undanskildum einum sólarhring. Aflinn er mestmegnis ufsi og ýsa og það er einkar ánægjulegt að ufsinn láti sjá sig, en það er langt síðan hann hefur fengist á þessum slóðum. Þetta er hinn fallegasti fiskur og ufsinn er góður milliufsi eins og oft er sagt,“ sagði Egill Guðni.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, sagði að túrinn hjá þeim hefði verið í rólegri kantinum. „Aflinn hjá okkur er að mestu þorskur og ýsa, aðeins ufsi með. Það var víða veitt í túrnum. Við byrjuðum á að taka þorsk og ýsu á Víkinni, síðan var haldið á Ingólfshöfðann og þar fékkst þorskur. Þá lá leiðin í Sláturhúsið og á Stokksnesgrunn og þaðan vestur á Öræfagrunn. Við enduðum svo á Víkinni. Þetta var tiltölulega þægilegt og veður var gott fyrir utan einn bræludag,“ sagði Jón í samtali við Síldarvinnsluna.

Bergur mun halda á ný til veiða annað kvöld og Vestmannaey á fimmtudagskvöld.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.