Blandaður afli hjá Eyjunum
Eyjarnar í heimahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Eyjaskipin Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu bæði í Þorlákshöfn í gær. Rætt er við skipstjóranna á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar eru þeir spurðir fregna af veiðiferðinni. Jón Valgeirsson á Bergey lét vel af sér. „Við hófum túrinn út af Sandgerði en þar var þokkalegt skjól. Síðan var haldið á Sannleiksstaði út af Þorlákshöfn og þar var fyllt. Aflinn var mjög blandaður; mest af karfa, síðan ýsa, langa og þorskur. Næst gerum við ráð fyrir að veiða fyrir austan. Það er semsagt Austfjarðaskurkur á dagskránni,” sagði Jón.

Birgir Þór Sverrisson á Vestmannaey sagði að áformað hefði verið að veiða fyrir austan en vegna veðurs hefði verið fallið frá því. „Við byrjuðum úti á Eldeyjarbanka og síðan kláruðum við túrinn á Selvogsbankanum. Það var engin kraftveiði en þetta mjatlaðist þokkalega og við vorum nánast með fullfermi. Helmingur aflans var karfi en síðan var þetta blanda af öðrum tegundum,” sagði Birgir Þór.

Að lokinni löndun í Þorlákshöfn héldu bæði skip til Eyja en áformað er að láta úr höfn í dag og halda austur á bóginn, segir en fremur í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis
Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn
Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.