Afmælisgleði í Miðstöðinni
Í gær voru grillaðar pylsur í Miðstöðinni en tilefnið var að 10 ár síðan Miðstöðin opnaði verslun sína í þeim glæsilegu húsakynnum sem hún er í í dag. Miðstöðin verður ýmis afmælistilboð í gangi og má þar nefna 40% afslátt af allri útmálningu sem og verða sérfræðingar frá Tengi, Álfaborg og Glerborg á staðnum og veita ráðgjöf.
Miðstöðin hefur frá upphafi verið fjölskyldufyrirtæki en núverandi eigendur þess eru hjónin Marinó Sigursteinsson og Marý Kolbeinsdóttir. Sigurvin Marinó Jónsson, pípulagningameistari, afi Marinós sem nú rekur Miðstöðina, stofnaði fyrirtækið árið 1940 en rak það undir sínu nafni allt til 1950 þegar það fékk nafnið Miðstöðin.
Fyrstu árin var fyrirtækið til húsa á Faxastíg 25, svo fluttist það yfir götuna á Faxastíg 26. Árið 1996 gjörbreytist öll aðstaða þegar Marinó og Marý keyptu neðstu hæðina í húsinu Vosbúð við Strandveg. �?ar var verslunin allt til ársins 2005 þegar það fluttist í núverandi húsnæði að Strandvegi 30.
Nánar í nýjasta tölublaði af Eyjafréttum þar sem rakin er sagan, sem og viðtal við Marinó eiganda og Dagnýju Helgu Eckard verslunar- og fjármálastjóra.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.