Afmælishátíð Landakirkju felld niður

Vegna þeirrar stöðu sem uppi er í samfélaginu um þessar mundir hefur verið ákveðið að 240 ára afmælishátíð Landakirkju, sem til stóð að yrði 30.ágúst næstkomandi, muni falla niður. Undirbúningur fyrir hátíðina hefur staðið yfir um nokkurt skeið, og líklega hafa bæjarbúar einna helst orðið varir við andlitslyftinguna á veggnum umhverfis kirkjuna, auk þess sem verið er að reisa nýjan vegg að vestanverðu (við Vallargötu).

Það er ljóst að kirkjustarfið þarfnast svolítillar aðlögunar vegna kórónaveirunnar, og um þessar mundir eru fermingar á fullu í Landakirkju, þó með breyttu sniði miðað við það sem gengur og gerist. Fjöldatakmarkanir eru í athöfnunum og tveggja metra reglan er einnig höfð í hávegum, auk þess sem engar altarisgöngur eru í kirkjum landsins.

Fermingarfræðsla fyrir 2007 árganginn mun hefjast seinna í haust en venjulega og munu prestarnir fá að koma skráningarblöðum í skólann ásamt nánari upplýsingum um veturinn framundan.
Kv. Guðmundur Örn Jónsson og Viðar Stefánsson

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.