Áform um fjögurra hæða byggingu við Strandveg
Mögulegt útlit húss eftir breytingar.

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að kynna á vinnslustigi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vegna fasteignarinnar við Strandveg 63.

Það er Jóhann Halldórsson fyrir hönd félagsins Island rent KJT ehf. sem sækir um breytinguna. Samkvæmt erindinu felst hún meðal annars í því að heimilt verði að hækka bygginguna úr tveimur hæðum í fjórar.

Jafnframt er gert ráð fyrir að byggingarreitur og hámarksbyggingarmagn aukist verulega, eða úr 348 fermetrum í 691,6 fermetra samkvæmt meðfylgjandi gögnum.

Í niðurstöðu ráðsins kemur fram að samþykkt hafi verið að kynna tillöguna á vinnslustigi samkvæmt skipulagslögum. Málinu hefur verið vísað áfram til bæjarstjórnar til frekari afgreiðslu. Áhugasamir geta kynnt sér fyrirhugaða breytingu nánar hér.

Nýjustu fréttir

Líkamsrækt við Hástein skrefi nær – tveir sátu hjá
Spegilmyndir í morgunblíðunni
Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.