Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Tillaga að útliti nýrrar íbúðabyggðar við Reglubraut. Húsin eru teiknuð á einni hæð með risi og falla að mati ráðsins vel að byggðarmynstri svæðisins.

Áform eru uppi um að reisa þrjú einbýlishús á reit við Reglubraut, þar sem áður stóð hús við Vesturveg 17b. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi svæðisins.

Erindið barst frá Sigurjóni Ingvarssyni. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er gert ráð fyrir þremur einbýlishúsum á einni hæð með risi á reitnum.

Í bókun umhverfis- og skipulagsráðs segir að byggingaráformin samræmist vel gildandi aðalskipulagi og falli vel að ásýnd og byggðarmynstri svæðisins.

Ráðið samþykkti því að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi reitsins og fól skipulagsfulltrúa að ræða við lóðarhafa um framhaldið.

Uppdráttur – loftmynd.

Nýjustu fréttir

Skilaboð til ríkisstjórnar Kristrúnar?
Kristrún framlengir við ÍBV
ÍBV tapaði á heimavelli gegn Fram
ÍBV byrjar Olís deildina á sigri
Dreymir um að verða fótboltamaður
Björt hlakkar til að læra að lesa
COWI annast umhverfismat vegna stórskipakants
Tvöföld ÍBV-veisla í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.