Áframhaldandi heilsuefling 65 ára og eldri

Vestmannaeyjabær og Janus – Heilsuefling hafa undirritað samning um áframhaldandi samstarf um heilsueflingar- og rannsóknarverkefnið „Fjölþætt heilsuefling 65+ í Vestmannaeyjum – Heilsuefling fyrir eldri aldurshópa”. Frá þessu er greint á vef Vestmannaeyjabæjar.

Verkefnið er búið að vera starfsrækt í Vestmannaeyjum í um fjögur ár með góðum og jákvæðum árangri. Markmið þess er að stuðla að bættri heilsu og lífsgæði eldri aldurshópa, draga úr útgjöldum ríkis og sveitarfélaga og vera fyrirmynd að heilsutengdum forvörnum. Verkefnið byggir á doktorsverkefni dr. Janusar Guðlaugssonar, íþrótta- og heilsufræðings. Hann í samstarfi við hæfa aðila í Vestmannaeyjum stýra verkefninu. Mjög ánægjulegt er að sjá hversu margir þátttakendur eru í verkefninu og einnig sá góði árangur sem hópurinn í Eyjum hefur náð.

Vestmannaeyjabær vill þakka Janusi og hans starfsfólki fyrir þeirra framlag til heilsueflingar í Eyjum, einnig gott samstarf við HSU í Vestmannaeyjum og sérstakar þakkir til þátttakenda í verkefninu.

Athygli er vakin á því að boðið verður upp á kynningu á verkefninu fyrir nýjum þátttakendum um miðjan ágúst og verður það auglýst síðar.

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.