Afþakka sunnlenskt samstarf
Ferðamenn á ferð í Vestmannaeyjum. Staða og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi verður til umræðu á fundi á Selfossi á morgun.

Á fundi bæjarráðs í lok síðasta mánaðar var tekið fyrir erindi frá Markaðsstofa Suðurlands þar sem óskað er eftir samstarfi við Vestmannaeyjabæ á ný um ímyndarsköpun, þróun og markaðssetningu áfangastaðarins Suðurlands í heild. Myndi samningur um slíkt samstarf fela í sér framlag sveitarfélagsins sem samsvarar 430 krónum á hvern íbúa til næstu 3ja ára.

Markmið Markaðsstofunnar er að auka veg ferðaþjónustunnar (og þar með tengdra greina) á Suðurlandi með því að laða gesti til landshlutans og fá þá til að dvelja lengur á Suðurlandi sem og að ferðast vítt og breytt um svæðið. Með því að vinna sameiginlega að hagsmunum ferðaþjónustunnar á Suðurlandi verður stefnumörkunin skýrari, fjármunir betur nýttir og slagkrafturinn meiri.

Í niðustöðu um málið kemur fram að bæjarráð getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu.

Tölvupóstur_Markaðaðsstofa Suðurlands.pdf

Starfsáætlun 2023_loka.pdf

Ósk um samstarf_ 2023_Vestmannaeyjabær.pdf

Ársreikningur Markaðsstofu Suðurlands ses. 2022_loka.pdf

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.