Aftur heima - Goslokalag Vestmannaeyja 2018

Goslokalag Vestmannaeyja 2018 heitir Aftur heima og er eftir Björgvin E. Björgvinsson. Lagið er flutt af Söru Renee Griffin en undirleik sjá um þeir Birgir Nielsen á trommur, Kristinn Jónsson á bassa. Á píanó og orgel leikur Þórir Ólafsson, Gísli Stefánsson á gítar og Einar Hallgrímur Jakobsson á flugelhorn. Útsetning, upptaka og hljóðblöndun var í höndum Gísla Stefánssonar og Sæþórs Vídó.

Hlusta má á lagið í spilaranum hér að ofan, textann látum við einnig fylgja hér að neðan.
Aftur heima
Lag og texti: Björgvin E. Björgvinsson
Veðrið bjart og vonarkyrrðin ríkir.
Vaknar líf er morgunhaninn gelur.
Upp úr hafi austursólin kíkir,
undurhlý – og græna kolla telur.
:,: Urðabrimið skæð‘ í skjóli dvelur. :,:
Helgafellið sumarkjólnum klæðist.
Kinnaroði hlíðar Eldfells litar.
Mosinn út á marglitt hraunið læðist
– mjúkum höndum nýja sögu ritar.
:,: Múkkinn yfir Heimakletti hnitar. :,:
Á vestureynni fagur fjallasalur
flauelsmjúkt af slegnu grasi angar.
Kumpánlega heilsar Herjólfsdalur,
hlæja á móti sælurjóðir vangar.
:,: Um Fiskhellana fimur peyi sprangar. :,:
Eyjasólin bak við Blátind rennur.
Brekkuraddir líða upp um geima.
Á Fjósakletti skæra bálið brennur
og bjartar vonir inn í hugann sveima.
:,: Í Dalnum slær mitt hjarta aftur heima. :,:

Nýjustu fréttir

Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.