Veðrið um jólin ætti samkvæmt norsku veðurstofunni Yr.no, að verða ágætt. Á sunnudag og þorláksmessu sem er á mánudaginn, er spáð snjókomu eða slyddu og hitastigið um 2 til 3 gráður. Á aðfangadag verður áttin norðaustlæg 3-5 metrar, skýjað og úrkomulaust og frost allt að 2 stig. Á jóladag á sólin að láta sjá sig, vindur af norðaustri, 3-5 metrar og hitastigið við frostmarkið.